Lánshæfismat byggt á væntingum.

Sorglegt.

Enn sorglegra að þetta séu sérfræðingar sem stjórna markaðnum með getgátum.

Frjálshyggjan á undir högg að sækja, því að þessi svo kallaði frjálsi markaður er ekki frjáls.
Samt stökkva hinir ófrjálsu til og gagnrýna frjálsa markaðinn sem forsendu kreppunnar.

Ef þau bara vissu...


mbl.is S&P gerir ráð fyrir að álverið við Helguvík rísi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já var það ekki!

Peningar eru uppspretta sjálfstæðis í nútíma evrópu. ESB sinnar, hvað segiði við þessu þegar kemur að því að ræða framtíð lýðræðis innan ESB?
mbl.is Evrópa sameini hagstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað getur evran hrunið.

Þetta er ekki spurning um hvaða gjaldmiðill er í notkun, heldur hvernig efnahagskerfið er skrúfað saman og það hefur sýnt sig að evrópska efnahagskerfið er ansi veikt.

Spurningin er hvort Ísland eigi að taka upp evruna og þá hvort það eigi að gerast fyrir eða eftir hrun evrunnar.


mbl.is 50% líkur á hruni evrunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eric Cantona í uppgjöri gegn bankakerfinu.

Og fólk í Frakklandi farið að skipuleggja svona aðferð 7. desember 2010.

Hugmyndin er farin að breiðast út frá Frakklandi til annarra landa.


Bara leyfa fólki að rækta þetta sjálft.

Það reykir þetta hvort eð er.

Milliliðirnir sem græða allan peninginn á svörtum markaði myndu þá nánast þurkast út og lögreglan gæti einbeitt sé að öðrum málum. Peningar myndu sparast í dómskerfinu og jafnvel smávegis í fangelsismálum líka.

Svo mætti nota hluta af þeim sparnaði sem samfélagið fengi út úr lögleiðingu til að minna fólk á það að þetta er samt sem áður hættulegt og ekkert gott að nota þetta frekar en áfengi eða sígarettur. Já eða sykur ef út í það er farið.

Og svo má skoða hvort það sé grundvöllur fyrir því að rækta iðnaðarhamp á Íslandi, það gæti verið fín búbót, það er ýmislegt hægt að búa til úr iðnaðarhampi, þó ekki jónur.


mbl.is Hald lagt á yfir 100 kannabisplöntur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og samt eru til peningar til stjórnlagaþings!

En já, gleymum því ekki að á meðan að fólk er upptekið við að tala um stjórnarskrána, gefst minni tími til að pæla í því sem stjórnvöld eru að gera.

Það má vel vera að það þurfi að laga stjórnarskrána en ég segi það enn og aftur að það má bíða þar til búið er að vinna mikilvægari mál.


mbl.is 634 gætu misst störf sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Indland og Pakistan.

...hafa ekki beint legið í faðmlögum í gegnum tíðina.

Bandaríkjaher fer annað slagið inní Pakistan frá Afghanistan til að berjast við Talibanana.

Það hefur lengi verið vitað að Bandaríkjamenn vilja leggja olíuleiðslu frá löndunum sem liggja á milli Rússlands, Afghanistan, Íran og Kína og í gegnum Pakistan til hafna þar og núna er hann í Indlandi að auka vináttu á milli USA og þessa gríðarlega sterka nágranna Pakistan.

Obama hefur líka talað um Íran sem mikla ógn við heimsfriðinn og ESB (ásamt Íslandi kannski í framtíðinni) sett á viðskiptaþvinganir gagnvart Íran vegna þess að þeir vilja fá að ráða sínum málum sjálfir. USA eru jú í Afghanistan og Írak og ekki fara þeir að ráðast inní Rússland eða Kína.

Ég hef það á tilfinningunni að það liggi miklu meira að baki þessari heimsókn Obama til Indlands og fleiri Asíu ríkja en það sem fram kemur í fréttinni.

"Þá greindi Obama frá því að bandarísk fyrirtæki hafi gert viðskiptasamninga við Indverja að andvirði 10 milljarða dala." - Hans stjórn er búin að prenta nokkur þúsund milljarða dala undanfarið sem hafa að töluverðu leyti farið í að bjarga stórum fjármálafyrirtækjum sem svo greiddu gríðarlega bónusa eftir á, semsagt skuldsetning þarlendra skattborgara til að bjarga þeim sem fóru illa með allt of mikla peninga. 
 
Ég er viss um að Obama hafi verið settur í embætti til að sefa reiði almennings sem var farinn að spyrja of margra erfiðra spurninga eftir 8 ár með Bush.
Tékkiði á ræmunni "Obama Deception" á YouTube, það kemur margt fram í myndinni sem fær mann til að spyrja sig hvort stjórnmál hafi svo mikið að segja lengur varðandi stóru ákvarðanirnar.

mbl.is Samstarf sem mun einkenna öldina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að gefnu tilefni.

Tékkiði á þessari grein um Icesave og nútíma bankakerfi.

Og endilega komið með mótrök við greinninni ef þið getið, það þarf virkilega að opna umræðu um framtíðar peningamálastefnu Íslands, utan eða innan ESB.

 


mbl.is Hóta íslenska ríkinu málsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta hlýtur að vera lygi...

"Allt að 170 störf skapast á Reyðarfirði við smíði nýrrar kersmiðju Alcoa Fjarðaáls en fyrsta skóflustungan var tekin í dag. 70 ný störf til frambúðar verða til á Austurlandi þegar rekstur verksmiðjunnar hefst eftir átján mánuði.
Daginn eftir að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lýsti í fréttum litlum áhuga á frekari uppbyggingu í áliðnaði hérlendis tók starfsmaður Alcoa-Fjarðaráls, Elías Jónsson, eða Elli á B-vaktinni, fyrstu skóflustunguna að fjárfestingu, sem felur í sér mestu atvinnusköpun utan höfuðborgarsvæðsins frá því núverandi ríkisstjórn settist að völdum, og hlaut fyrir lófaklapp samstarfsmanna." - Tekið af Vísi.is - http://www.visir.is/enginn-radherra-vid-mestu-atvinnuskopun-landsbyggdar/article/2010151667758

Ég hélt að það væri ljóst að engin verður uppbyggingin fyrr en við erum kominn inn í ESB?
Já já, já sinnar, ég veit alveg að þetta var komið í gang undir seinustu stjórn og hefur ekkert með núverandi stjórn að gera, en þetta sannar að það er hægt að gera hluti utan ESB, meira að segja góða hluti líka.


Ísland og ESB.

Er þetta virkilega rétti tíminn fyrir yfirvöld til að vinna að inngöngu í ESB?

Ættum við ekki að laga til heima hjá okkur fyrst, heldur en að flytja fátæk inní stöðu sem lítur eins út fyrir venjulegt fólk.

Í vandamálunum felast tækifærin og þau eru meðal annars breytt peningamálastefna fyrir Ísland, sem verður mun flóknara ferli ef við erum í ESB.
Því ekki að rífa okkur uppúr öskustónni, sýna umheiminum að það sé hægt og SVO ræða aðild að ESB?


mbl.is Evrópska skuldakreppan fer versnandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband